Tinna #6
08.12.2007 17:46:08 / tinnaj

Spila ping pong i kvöld ?

Já við skötuhjú í sveitinni deyjum ekki ráðalaus. Í gærkvöldi var voðalega fínt föstudagskvöld hjá okkur. Komum heim um 6 leytið af æfingu og ég fór strax í það að baka smákökur og Villi að vinna í verkefni. Svo var kjúllinn settur í ofninn og haldið áfram að hnoða smákökudeig. Við ákváðum að skrifa jólakort þetta árið, svo Mr.Sinatra var settur á fóninn og jólakortin skrifuð :) Æ svo nenntum við ekki að glápa á sjónvarpið...svo Villi kom með þessa snilldar hugmynd að skella okkur í borðtennis...já þá var hann ekki að meina að fara á einhvern íþróttabar og taka púl og ping pong...heldur skelltum við bara jólaskrautinu og dúknum af risastóra borðinu okkar, settum bækur í miðjuna, tókum spaðana sem ég hafði keypti í Thailandi upp úr skúffunni og héldum þetta fína borðtennismót í eldhúsinu okkar....hehe...þetta var bara þvílíkt góð skemmtun :)

En annars er jólaskapið alveg að fara með húsfrúnna...er alveg tryllt í að kaupa jólaskraut og Villi fussar í hvert sinn sem ég kem heim með eitthvað fínerí....hann skilur ekki alveg til hvers ég er að kaupa allt þetta dót, en ætli þetta sé ekki bara munurinn á körlum og konum, við kvennsurnar meira fyrir að skreyta en karlarnir verða alltaf að finna eitthvað notagildi í hlutunum, skraut er varla nothæft :)

Svo er ég líka jómfrú í jólabakstri, er búin að klúðra einni sort...en það tókst betur í seinna skiptið....svo núna eru það sörurnar sem ég er að glíma við og lyktin lofar alla vega góðu...Svo þeir sem vilja koma í sveitina í smákökur, ping pong og Sinatra...eru velkomnir, alrei að vita nema við sláum upp fótboltavelli í stofunni :)

Jæja farin að spisa

Tinna jólastelpa


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 21:36:05 / tinnaj

Amy Winehouse að horfa á æfingu

Shitt..það ætti bara að fara að setja múl á mig eða eitthvað. Ég er svo hrikalega óheppinn stundum þegar ég opna á mér þverrifuna og lendi mjög oft í því að vera misskilin, eða jafnvel segja eitthvað sem er ekki alveg í takt. Ég hef til dæmis oft valdið vinkonum mínum miklum andlitsroða þegar ég hef ákveðið að skella einni og einni athugasemd upp á yfirborðið, jafnvel um geirvörtur annara karlmanna svo dæmi sem nefnt. En í dag tókst mér að vera lúði á dönsku. Ég var á æfingu og leit eitthvað upp í stúku. Þar sat einhver pía og var að horfa á æfinguna. Hún var í svaka múnderingu...með svakalega stórt hár, það er að segja svart hár sem var mikið og úfið...svo var hún máluð alveg hrikalega mikið um augun og var í 15 cm pinnahælum....ég ákvað að vera fyndin og segi við eina stelpuna með mér í liði....,,Hva Amy Winehouse bara mætt"...ha hvar segir stelpan...,,þessi pía þarna í stúkunni" bendi ég henni á...hva...det er min søster....shitt maður..ég varð eins og skítur...og reyndi eitthvað að flissa og afsaka þetta...en það var eiginlega ekki hægt...ég var búin að líkja litlu systur hennar við kókaínháðan anorexíusjúkling...og þar með var búið að henda mér í gröfina og byrjað að moka mold yfir....

 


 

En annars erum við svona nett hress í sveitinni. Handboltalega séð er staðan ekkert spes hjá Lemvig gaurum, þeir eru með eitthvað blý í rassgatinu þessa dagana og töpuðu fyrir botliðinu um daginn...hreint ótrúlegt...voru 5 mörkum yfir en töpuðu því niður á 3 mínútum..og töpuðu svo leiknum...já það var sko ekki kátt í rútunni á leiðinni heim. En við stúlkur í 2.deildar liði Holstebro töpuðum á móti Ikast á sunnudaginn eftir að við spiluðum bara hreint ágætan leik og stóðum í þeim næstum allan leikinn...ég gat meira að segja næstum tekið undir Pollýönnu-leikinn eftir leikinn og verið þokkalega sátt þrátt fyrir tap.

En annars skelltum við okkur til Aarhus á laugardeginum að versla jólagjafir...þar sem ég er búin að finna upp mjög góðan leik við svoleiðis verslunardaga....Einn fyirr þig og Einn fyrir mig :)..ég sem sagt keypti svoldið á sjálfan mig..en náði að fela það ágætlega fyrir Villa því ég dinglaði bara jólagjöfunum framan í hann og skrifaði tjekk við jólagjafalistann :) Svo var okkur boðið í mat og spil hjá Gerði og Davíð...alltaf gaman að hitta þau sætu skötuhjú :)

En jæja...er farin að lúlla...

Tinna lúði


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 14:19:11 / tinnaj

Sveita-doksi

Var að koma heim frá fyrstu læknisheimsókninni hér í Danmörku. Vá hvað ég bý í hrikalega mikilli sveit. Ég pantaði sem sagt tíma og keyrði af stað til Læknisins. Hann er sem sagt með klínik hér rétt út fyrir Lemvig í pínu oggu ponsu litlum bæ sem heitir Gudum. Klínikin er sem sagt í algjörri sveit, nánar tiltekið á sveitabæ, heimili læknahjónanna var einn inngangurinn svo var annar inngangur þar sem klínikin var, kona læknisins vinnur sem ritari og beljurnar voru bara á beit á hlaðinu...voðalega heimilislegt :) Svo ætlaði ég að fara að borga fyrir þessa læknisskoðun, bjóst nú bara við að þurfa að leggja út ca 3000 kall svona eins og heima...en ritara-læknisfrúin brosti bara breitt með rauðlituðu vörunum sínum og tilkynnti Íslendingnum að ekkert kostaði að fara til læknis í Danmörku :) ...jibbí...ég var ekkert smá sátt ....keyrði því bara rakleiðis til Holstebro og keypti mér nokkrar flíkur í staðinn :)

En síðasta helgi var voðalega fín. Við fegum heimsókn frá klakanum þegar Halldór, Helga og Gunnar komu í stutta heimsókn. Þau komu á föstudagskvöldið og náðu svo að sjá heimaleik hjá Villa á laugardeginum, þar sem þeir unnu Lyngby. Svo borðuðum við bara heima í kotinu okkar á laugardagskvöldinu, spiluðum og höfðum það kósí. Svo keyrðum við í heimsókn til frændfólks Villa á sunnudeginum áður en keyrt var út á flugvöll. Hrikalega gaman að fá þau í heimsókn þó stutt væri. Þau stoppa kannski lengur næst og leyfa mér að stjana enn betur við þau :)

Feðgar að setja upp spegilinn 

Helga og Gunnar 

En nú er ég að fara að vinna...Villi ætlar að skella sér til Skjern á handboltaleik en ég verð víst að vinna eitthvað. Svo stefum við á að fara ef til vill til Aarhus um helgina að versla smá jólagjafir...eða bara til Esbjerg :)

Hafið það gott börnin góð :)

Tinnan


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 13:12:19 / tinnaj

Bubba "Villi" shrimp

Jæja...var að koma heim eftir langan dag. Mánudagar eru alltaf pínu langir hérna í sveitinni...svona miðað við hina dagana alla vega. Ég fer í vinnuna í Skjern upp úr 9 og svo beint til Holstebro á æfingu, svo til baka til Lemvig að kenna bakleikfimi. Ég er sem sagt komin aftur heim um hálf 10...þreytt og með algjört sixpakk eftir allan hamaganginn. Ég er bara þokkalega sátt við að vera að kenna þessa bakleikfimi...þetta þýðir bara að ég fæ extra klukkutíma á hverri viku að gera maga og bakæfigar..og maður fær sko aldrei nóg af þeim :)En þetta fólk í þessari líkamsræktarstöð...úff...sumir eru ágætir en ég búin að kynnast nokkrum sem eru það spes að þeir fá sérstaka færslu á blogginu mínu.


Konan í bleika bolnum : hún kemur alltaf 1-2x í viku að æfa. Hún er með stutt hár og kókbotna-gleraugu og er alltaf í svona bleikum ógeðslega síðum bol og hjólabuxum. Hún æfir alltaf samviskusamlega, en tekur fyirleitt svona 20 mín pásu inn á milli og hringir símtal...bara spjalla...og svo...sest hún í innanlæristækið og fer að klippa á sér táneglurnar...já ég sver það....hún tekur skærin úr töskunni og ræðst á neglurnar.....spes


Svitafýlu-Bicep-gaurinn : hann er tyrki sem kemur að æfa nokkrum sinnum í viku. Hann er aldrei í æfingafötum, heldur æfir minn bara í gallabuxunum og hlírabolnum. Hann hlítur að vera involveraður í eitthverju Bicep-veðmáli...því gaurinn lyftir einugis á bicep...en hann má eiga það að hann er helvíti fróður um bicepæfingar...tekur stundum meira að segja litlu systkinin sín með og lyfir þeim. Svo þar sem hann hefur ekki fyrir því að skipta um föt fyrir æfingu, þá angar kallanginn alveg hrikalega...þetta er ekki eðlilegt....öll líkamsræktarstöðinn stinkar svo hrikalega eftir að hann hefur verið að æfa. Ég er að spá í að gefa honum svitastifti og rakspíra ..og segja bara að hann hafi unnið leynilegu bicepkeppnina sem var í gangi :)


Svo eru alveg nokkrir þarna sem nauðga ljósabekkjunum hrikalega....sérstaklega einn maður og ein kona. Maðurinn er með sama hörundsfar og Villi en hann er jafn brúnn og Micheal Jordan...svo eru freknurnar alveg að yfirtaka andlitið á manninum. Konan er eins og kúkur hún er svo brún...Mig langar stundum að segja bara NEI þegar þau biðja um mynt í sól...uss suss suss


En hey...annað eitt ógeðlsega fyndið...Það var viðtal við Villa í svona leikvísi fyrir einn leikinn hérna. Hann var spurður um áhugamál utan handboltans, og eins og sönnum fegurðardrottningum sæmir svararði hann ferðalög, þ.e. rejser...þá var blaðið prentað með smá prentvillu...og út kom rejer...sem þýðir rækjur....hehehehehe...Íslendingurinn sem hefur sérstakan áhuga á rækjum....aahahahahaha

Svo vil ég óska elsku Freyju til hamingju med at vera ordin eins árs pæja...úff hvad tíminn lídur hratt, nú er tetta litla kríli farin at labba og dansa høfud herdar hné og tær...oh hvad ég hlakka til at hitta hana um jólin

Out Tinna


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 21:47:39 / tinnaj

Vúdú kellingin

Hæ hæ...vildi bara setja inn 2 myndir hérna...

...fyrst er það mynd sem ég var að fá senda frá Árnýju. Þetta er mynd af henni, Fannari, Degi Leó og Einari...og svo ef vel er að gáð má sjá glitta í ógeðis útigangskonuna sem réðst á mig í Kaupmannahöfn um daginn....Finnst ykkur skrítið að ég hafi orðið skellkuð...hún er varla mennsk hún er svo viðbjóðsleg...

vúdú

Einar þú ert enþá með pláss á hetjuhillunni minni...takk fyrir hjálpina

Svo vil ég setja aðra mynd inn bara svona til gamans...Þessi mynd er tekin af okkur systrum kvöldið áður en ég flutti út til Danmerkur....Oh ég sakna þeirra svo mikið. Þær eru algjörir snillingar. Mollý er 13 ára pæja, alltaf eitthvað að fá ráð hjá stóru siz varðandi föt og skart...og ég verð nú að viðurkenna að mér finnst alveg hrikalega gaman að stússtast í því með henni. Svo er það Erna sem er 8 ára snillingur. Hún er svo ótrúlega skemmtilega forvitinn og mikill spekingur...aljgör grallari og smá slagsmálahundur. Þær eru alveg yndislegar og ég hlakka til að hitta þær um jólin :) 

Tinna, Mollý, Erna

Annars lítið nýtt...vorum að koma heim eftir æfingar, ætluðum að hafa videokvöld...en Villi þarf að skila verkefni á morgun svo hann situr núna sveittur við tölvuna. Duglegur í skólanum þessi elska. Ég er nú samt ekki alveg að átta mig á því að ég sé ekki í skóla lengur. Finnst eiginlega eins og ég sé pínu enþá í sumarfríi. Var einmitt að aðstoda Villa við verkefni í síðustu viku og fann alveg hvernig BS-fílingurinn helltist yfir mig...ég get nú ekki neitað því að þetta var slatti strembin tími, en þegar ég lít til baka þá var þetta bara asskoti skemmtilegt....rosa stemning í Skógarhlíðinni, allir að læra og svo pásurnar...þær voru bestar.ósjaldan sem Eldsmiðjan var heimsótt, eða ísbúðin. Æ kannski er ég með einhverjar rósa-mynningar um þetta en þegar uppskeran skilar sér þá er maður sáttur :)

En jæja...nú er ég farin að láta gammin geysa...

farin að hangsa...kv Tinna 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 22:40:46 / tinnaj

Gucci, Prada, Louis Votton, Dior, Chanel....

Ég ætla að tileinka þessari færslu henni Rakel Dögg vinkonu minni. Hún ein af mínum uppáhalds manneskjum í heiminum og hún er alltaf svo dugleg að kommenta og kvetja mig áfram í blogginu...sérstaklega núna þessa dagana þegar hún á að vera að læra en sárvantar truflunarefni á netinu...orðin þreytt á að búa til skrípamyndir á apple tölvunni sinni, þrátt fyrir að það sé magaæfing út af fyrir sig þar sem það er svo ógeðslega fyndið að teygja og toga myndir svona :) Hér er samt ein mynd sem ekki er búið að fikta í :)

 

En síðasta helgi var alveg frábær. Við Villi skelltum okkur til Ítalíu þar sem við heimsóttum Svövu í Florence þar sem hún er að læra fatahönnun. Við flugum snemma á föstudegi (sváfum í 2 tíma) og vorum mætt hrikalega fersk til Florence um hádegi, eftir að hafa sofið með gapandi munn í tveimur flugum...oh ég hata það, maður sofnar með höfuðið aftur og munnurinn slakar svo vel á að maður er eins og api sem er úr kjálkalið, andardrátturinn verður hærri og svo fer maður að kippast til. Þá vaknar maður og reynir með óþreygju að bleyta munninn eftir allt gapið og verður rauður í framan af skömm því þessi stelling er á engan hátt töff. En já ....á flugvellinum tók Svava á móti okkur og fór með okkur í litlu sætu íbúðina sína sem hún leigir með 2 öðrum. Hún er staðsett frekar miðsvæðis og er ekta ítölsk, brattir þröngir stigar upp að henni og hlerar fyrir gluggum :)

Föstudagurinn fór svo í það að skoða skólann hennar Svövu. Hann er í svona hálftíma göngufjarlægð frá íbúðinni svo við fengum fínan skoðunartúr um Florence í leiðinni. Skólinn var virkilegar flottur, er upp á hæð og þar er stór almenningsgarður við hliðiná. Gosbrunnur fyrir utan og byggingarnar voldugar. Það var virkilega gaman að fá að skoða skólann og sjá svoldið hvar hún Svava hefur verið að vinna síðustu 3 ár. Ég verð nú samt að segja að ég held að max þyngd á þeim stelpum sem ég sá á skólasvæðinu var 40 kg...úff hvað þær voru eitthvað ,,petit" en það fylgir víst þessum tískuheimi :) Um kvöldið fórum við svo út að borða á æðislegum stað, drukkum rauðvín og huggulegheit. Svo fór Svava með okkur á voða hipp og cool stað þar sem við fengum okkur kokteila :)

Laugardagurinn var svo tekinn í lunch og svo meira lapp og nú voru það búðirnar og miðbær Florence sem urðu fyrir barðinu á túristunum. Mér fannst þetta vera pínulítið í dýrari kantinum, maður er orðin svo mikill dani og vanur að versla í HM, en það er klárt mál að ég kem aftur til Florence þegar buddan er orðin aðeins þyngri og þá getur maður kannski leyft sér svoldið meira, jafvel skellt í einn Guðjón eins og Svava myndi segja (þýð: Gucci). En eftir þrammið á laugardeginum fórum við heim og drukkum smá rauðvín heima þar sem fæturnir voru orðnir pínu lúnir eins og oft vill verða í svona labbitúrum.

Við Villi komum svo heim eftir þessa skemmtilegu helgi í Florence á sunnudeginum og þá beið okkar nokkuð skemmtilegar fréttir. Fyrir helgi hafði Villi átt að selja einhverja happadrættismiða en þar sem hann þekkir enga fyrir utan handboltann hér, þá keypti hann bara alla miðana sjálfur, bara svona til að sýna lit. Nei nei, kappinn vann bara fyrstu verðlaun = 5000 danskar krónur. Svo það var ekkert smá hentugt að fá þetta eftir ferðina, því annars hefði Guðjón ef til vill verið enn meira freistandi :)

En jæja...bið að heilsa í billi, vil þakka Svövu innilega fyrir frábæra samverustund og hlakka til að hitta þig aftur um jólin. ciao bella

Ps. ég er búin að setja inn myndir frá ferðinn hér á síðunni.

Ciao !!!!! Tuttala frutti


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 22:24:29 / tinnaj

Florence..here we come

Hæ hæ...var að koma heim frá því að keppa leik. Gaman gaman unnum Tjöring með 7 mörkum sem var ágætt eftir að hafa tapað með 7 á sunnudeginn á móti Randers. Þessi lið sem við erum að keppa við eru svakalega misjöfn, til dæmis var Randers mjög vel spilandi lið með fljóta hornamenn og góðar skyttur. Við fengum enga spilara frá unglingunum né fyrsta liðinu í þessum leik og því var ég hávaxnasta skyttan á svæðinu og úff...þá er illt í efni. Svo í dag fengum við hjálp frá þremur leikmönnum frá fyrsta liðinu og mættum mun slakara liði og þá unnum við með 7. Jahá...þetta er svoldið eins og renna í blindan sjó þegar maður fer að keppa, ég veit ekkert um mótherjana, lítið um samherjana og get aldrei spáð fyrir um hversu mikið ég eigi eftir að spila....en þetta er ágætt og fylgir því víst að vera útlendingur að spila í 2.deild :)

Síðustu helgi fórum við Villi til Aarhus til að kíkja á jólabjórs-stemninguna þar. Jólabjórinn kom á barina í tonnatali kl 20.59 á föstudagskvöldið. Við keyrðum eftir æfingu og heimsóttum Gerði og Davíð, við skelltum okkur að sjálfsögðu til að taka á móti jólabjórnum á barnum, og hann smakkaðist bara alveg ágætlega. Ekki endilega besti bjór í heimi, sem verðskuldar varla þessa miklu eftirvæntingu sem er meðal Dana rétt fyrir afhendingu, en hann skapar vissulega skemmtilega stemningu, það var fjöldinn allur af fólki í bænum og margir ansi skrautlegir :) En við handboltakempurnar (Villi, Tinna, Gerður) vorum bara róleg á því þar sem við áttum öll leik á sunnudeginum, en Davíð sá um þetta fyrir okkur :)

Laugardagurinn hófst svo á morgunverðarhlaðborði í kotinnu þeirra skötuhjúa og svo var haldið í sjopping tour í Aarhus. Oh hvað ég elska að versla þarna, þetta er æðislegur miðbær. Ég var í þvílíkum ham og gat eytt nokkrum aurum af nýfengnum auð mínum en Gerður stóð við hlið mér sem dyggur með-sjoppari og var ótrúlega dugleg að slá á puttana á sér :) Strákarnir forðuðu sér reyndar í eitthvað fótboltapartý en við hittumst svo öll um kvöldið og borðuðum saman á ítalskum stað. Svo keyrðum við Villi heim í Lemvig því maður verður víst að sofa í eigin rúmi svona fyrir leik :) En frábær hittingur og við vonumst til að hitta Aarhus vini okkar bráðlega í sveitinni :)

Svo er það Ítalía sem er næst á dagskrá. Það er komið að því, við Villi ætlum að skella okkur í heimókn til Svövu í Florence...úúúú ég hlakka svo til...það verður æðislegt að hitta hana og fá að sjá aðeins þennan heim sem hún býr í, skoða skólan hennar og auðvitað, túristast pínu í Florence :) Þetta verður að vísu stutt stopp því ekki má Villi skrópa á æfingu, frá föstudegi til sunnudags, en það eru gæðin en ekki magnið sem telja :)

Jæja, farin að glápa

kv Tinna


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 22:08:56 / tinnaj

Sannur Íslenskur Víkingur

Hæ hæ...já núna er enn ein vikan byrjuð hér í Danaveldi....ég sver það tíminn þýtur áfram hérna, brátt verða blessuð jólin komin og við Villi komin heim á klakann í hangikjötið og tjillið :)

Um helgina spiluðum við leik í Álaborg sem tapaðist....mjög illa leikinn af okkar hálfu og bara ágætt að þetta var lengst í burtu svo heimamenn fengu ekki að sjá hrillinginn. En þrátt fyrir tapið var ákveðið að halda liðspartý heima hjá einni í Holstebro. Auðvitað skellti ég mér í þetta teiti þrátt fyrir að vera ekki með neinn ,,vingman" og tók eina hvítvín með mér. Í fyrstu var ég ekki viss hvernig þetta myndi nú vera, djamma með dönskum píum sem flestar eru 3-6 árum yngri en ég. En well....ég mætti náttúrlega seint eins og sönnum Íslending er lagið og þegar ég kom var allt liðið í drykkjuleikjum....jibbí...ég get sko plummað mig þar hugsaði ég. Fyrr en varði var ég farin að stjórna drykkjuleikjum þarna á minni einstaklega góðu dönsku og svo eftir 2 umganga af ,,svart-rautt, hærra-lærra" leiknum tók íslendingurinn bara upp á því að kenna dönunum Víking-leikinn. Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta asnalegasti drykkjuleikur í heimi, maður flautar eins og bjáni út í loftið og setur hendurnar á hausinn og svo eiga hinir að róa á þykjustinni bát...úff...en þetta vakti mikla lukku, danirnir hlóu mikið af Vikinga-Íslendingnum...og þar með var markmiðinu náð. Mér fannst það reyndar ekki jafn sniðugt þegar ég mætti svo á æfingu á mánudeginum, þá var mér heilsað með lúðraflauti af víkingahefðum og svo á þjálfarinn það til að ávarpa mig sem hey du Viking.....og þá hafa þessi lúðraflaut einnig fengið að fylgja með :)

En um helgina hlaut Villi kærastaverðlaun ársins...hann var svo mikið yndi þessi elska. Hann byrjaði á því að skulta mér í partýið til Holstebro, svo sótti hann mig um nóttina (eftir að hafði sent honum vinsamlegt sms á dönsku). Svo átti ég að vinna í Motionscenter kl 9 um morguninn, þá fór kallinn bara fyrir mig og leyfði mér að sofa örlítið lengur. OOOO...ég veit...vann sér inn nokkra puntka þarna :)

 

En á sunnudaginn saknaði ég heldur betur Íslands. Það var nefnilega verið að skíra nýjasta fjölskyldumeðliminn og ég gat ekki verið á staðnum. Hefði svo sannarlega viljað vera viðstödd þar sem ég hlotnaðist þann mikla heiður að vera guðmóðir litlu frænku minnar. Þar með er ég búin að eignast 2 guðdætur, svo það verða bissý sunnudagar í kirkju þegar ég flyt aftur heim :) En innilega til hamingju með fallega nafnið þitt elsku Katla Dögg :)

Jæja er farin að lúlla (eða horfa pínu á Gray´s Anatomy eða Private practice, elska þessa þætti)

Tinna víkingur


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 21:06:28 / tinnaj

Bauna-Boru-Brækur

Þetta er náttúrulega ekki hægt, hvað er málið með danskar handboltastelpur og stuttbuxurnar þeirra ? Ég er sem sagt að keppa hérna úti með dönsku liði og við spilum í þessum fína bláa búning, ég fékk númerið mitt, 6, og fína treyju sem þrengir hvergi að....og svo kom að því að skella sér í stullurnar....ertu ekki að grínast...."huhum, afsakið, það virðist sem ég hafi fengið stuttbuxurnar úr barnasettinu" nei elskan mín við spilum í þessu. Je dúdda...hvað er í gangi, ég byrjaði að svitna og fór að sjá mig fyrir mér þurfa að fara sérstaklega og róta í karlabúningunum til að finna brækur sem passa...nú jæja hugsaði ég, ég fer bara með mín djúsí læri í smá spandex hjólabuxur og vona það besta. Og það gekk upp, þetta leit svona allt í lagi út og ég inn á völlinn.....ég er að segja ykkur það að 50% af allri minni orku og athygli fór í að halda helvítis brókunum úr borunni á mér, ég meira að segja greip næstum því ekki boltann einu sinni þar sem ég var önnum kafin við að toga helvtítið niður. Kommon...til hvers að vera í þessu litla drasli þegar maður þarf ekki að vera sexý inn á vellinum, maður er hvort eð er ógeðslega sveittur og geðslegur þannig að af hverju ekki að vera í einhverju þægilegu....hananú, ég fer á morgun og kaupi almennilegar brækur í sama lit og spila þá bara eins og lúði...en þægilegur lúði :)

 

 

 

En já btw við töpuðum leiknum sem sagt á móti Viborg, liðið virtist nú ekki vera neitt að kippa sér mikið upp við það, júsú bróðir besti andinn var á svæðinu og mikið einblínt á það eftir leikinn hvað við hefðum nú spyrt vel frá okkur og reynt að berjast allan tíman....úff erfitt að vera útlendingur með takmarkað málfrelsi stundum, en kannksi bara heppilegt í þetta skipti svo tapsári úllinn hefði ekki eyðilagt þessa biblíustund :)

Annars erum við hress hér í sveitinni, vorum að koma frá Skjern að horfa á leik, þeir burstuðu aumingja Mors, ég var farin að vorkenna þeim á tímapunkti. Þar hittum við svo nokkra Íslendinga, en strákarnir úr U´21 landsliðinu eru staddir í Skjern og eru að fara að keppa æfingaleiki á næstu dögum og aldrei að vita nema við hjónaleysin skellum okkur á leik og hvetjum okkar menn :)

over and out

Tinna


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 17:50:19 / tinnaj

Hollaback girl :)

Ég elska Gwen Stefani....ótrúlegt hvað maður verður heillaður af einstaklingum eftir að maður hefur farið á tónleika með þeim. Ég hef upplifað þetta 2x núna á stuttum tíma. Fyrst var það Celine Dion í Vegas og allt í einu var My heart will go on farið að hafa undarleg árhif á mann með gæsahúð og kökk í hálsi. Og nú er það Gwen sem hefur stigið upp á pallinn...úff hvað þetta voru geggjaðir tónleikar, hún er klárlega töffaðasta gellan í bransanum, ógeðslega sæt og fyndin, syngur ekkert smá vel og hefur enga smá orku á sviði. Lögn hennar hafa fengið nýja merkingu hjá mér og hljóma nú statt og stöðugt á mínu heimili, tölvu, bíl og i-pot :)

 

Já ég sem sagt skemmti mér konunglega á tónleikunum í Köben sem var hápunkturinn á frábærri helgi. Föstudagurinn byrjaði mjög vel, Villi og þeir í Lemvig unnu Stoholm á útivelli og var geggjuð stemning á vellinum og 3 stig í hús. Eftir leikinn skelltum við okkur á smá bæjarrölt í Lemvig með Vigni ,,mottu" og var það bara alveg ágætis skemmtun. Bæjarlífið hér í bæ er nú samt ekkert til að hrópa húrra fyrir en við erum svo fjandi skemmtileg að þetta gekk alveg upp ;)


Á laugardeginum skundðum við Villi svo til Köben og hittum íslenska vini okkar víðsvegar að. Þar var strikið straujað á mettíma og svo fórum við öll saman út að borða á Hereford...voðalega gott. Héldum svo heim til Arnórs og Guðrúnar þar sem hátíðarhöldin héldu áfram. Kíktum svo aðeins á Sams-bar sem var valinn af mjög söngelskum einstakling, sem reyndar klikkaði á því að stíga á stokk og þenja raddböndin....:)


Sunnudaginn fór svo í það að spóka sig í miðbænum, rölt á nýhöfn og tveir brunchar teknir :) Svo var rúsínan í pylsuendanum að fara á tónelikana um kvöldið, sem við píurnar fórum bara og gaurarnir voru eftir heima að passa börnin :)


Ég er mjög hrifin af Kaupmannahöfn, mér finnst alltaf ákveðin stemnning að koma þangað, væri alveg til í að búa þar einhvern tíman. Þá kæmu ef til vill fleiri í heimsókn til mín, þar er nefnilega engin örtröð af gestum hérna í sveitinni :) En samt er borgin svoldið hættuleg...ég varð fyrir árás...já árás. Við vorum að ganga í bænum öll í hóp og ég var aftarlega í hópnum. Allt í einu var gripið harkalega í jakkann minn og klipið vel í bakspikið á mér....ái..ég hélt strax að þetta væri einhver klunnalegur Íslendingur sem ég þekkti þar sem það er nú ekki óalgengt að hitta klakabúa á strikinu, en ég leit við og sá að þetta var kolbikasvört útigangskona sem ríghélt í mig og í hinni var hún með bjór og sígarettu. Ji hvað mér brá en kellingin herti bara takið og starði á mig með svörtum augum og grimmilegu augnráði....úff hvað ég var hrædd...þá kom Einar mér til bjargar með því að öskra á kellinguna á góðri íslensku ,,hvað ertu eiginlega að gera" og sló til hennar svo hún missti takið...ég hljóp í burtu með kúkinn í brókunum og hjartað alveg á million. Úff...ég var næstum því búin að fara að grenja úr hræðslu...svo bætti það ekki úr skák að eftir að ég var búin að hrista mesta hræðsluhrollinn af mér....sá Einar um það að minna mig reglulega á atburðinn og lagði sig allan fram í að sannfæra mig að kellingin hefði pottþétt lagt á mig svartagaldur....


En því miður eru engar myndir frá þessari frábæru helgi þar sem ég var batteríslaus, en Elfa var dugleg á myndavélinni svo ég bendi bara á bloggið hennnar. Takk fyrir frábæra helgi góða fólk :)


kv Tinna vúdú


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 21:05:07 / tinnaj

Voðalegur raki er hérna

Vá hvað ég er eitthvað slöpp að blogga....það er bara svo mikið að gera í sveitinni...einmitt...blogleti heitir þetta og nú verða gerðar endurbætur á því, þó það sé ekki nema stutt update :)

Það helsta sem hefur verið að gerast hérna í Danmörkunni er að mútta var í heimsókn hjá okkur í 4 daga og var það alveg æðislegt að fá hana í heimsókn. Mér fannst sérstaklega spennandi að sýna henni HEIMILIÐ OKKAR...þar sem ég er búin að búa lengi í mömmukoti og aldrei eignast mitt eigið. Sú gamla var bara held ég ánægð með slottið okkar hérna úti og hreifst einkum af ltila sæta sjávarbænum okkar. Henni tókst meira að segja að sjoppa á göngugötunni í Lemvig, sem er nú ekki upp á marga fiska, en hún móðir mín er fyrirmyndar shoppaholic sem tvínónar ekkert við hlutina þegar opna skal budduna í búðunum...alveg eins og dóttir sín..hehe :) Annars fórum við líka til Aarhus þar sem það rigndi eldi og brennisteini á okkur en það var sosum allt í lagi því þá neyddumst við til að hanga lengur inn í búðunum, Villa til mikillar ánægju. Svo höfðum við það bara huggulegt í Lemvig á milli verslunarleiðangra, með rauðvín í annari og slúðurblöð frá Íslandi í hinni :)

Svo skruppum við Villi til Íslands í örstutta heimsókn, SS-pylsa og kókómjólk voru þar í aðalhlutverki og Villi fékk að keyra jeppa-trillingstækið sitt. Annas náðum við ekki að gera mikið og hitta marga en það var gott að stíga á landið græna og ég er ekki frá því að það hafi kveikt örlítið á heimþráar-neistanum sem að öðru leiti hafði ekki látið á sér bera að miklu ráði frá því ég flutti út. En annars verður klakinn heimsóttur næst um jólin, oh það verður æði, engin skóli, bara hygge með familien og venner :)

Handboltinn heldur áfram hér út hjá okkur báðum skötuhjúum. Villi og þeir í Lemvig unnu fyrstu 3 leikina sína en töpuðu svo á móti Ajax síðustu helgi. Ég var ekki með liðinu í þeim leik þar sem ég var sjálf að keppa, við erum búar að spila 2 leiki í 2.deildinni, liðið mitt heitir HH90 sem er 2.liðið hjá Holstebro. Við erum ekki svo margar en við fáum alltaf einhverja leikmenn til að styrkja liðið frá 1.liðinu eða unglingunum. Ég var til dæmis miðjumaður í fyrsta leiknum þar sem við gerðum jafntefli og svo var kellan bara sett í skyttuna í þeim næsta enda ekki þekkt fyrir annað en sín þrumuskot :) Þann leik unnum við með 8 mörkum svo þetta byrjar alveg ágætlega.

Næst á dagskrá er svo að undirbúa sig fyrir bakleifimistíma sem ég byrja með á mánudaginn....og já ekki má gleyma aðal dæminu....GWEN STEFANI...uss ég er að fara á tónleika með töffara-gellu aldarinnar á sunnudaginn. Við Villi ætlum að keyra til Köben þar sem handboltafólk viðsvegar frá ætlar að safnast saman og halda jafvel smá samkomu á laugardagskvöldinu og svo förum við píurar á tónleikna á sunnudaginn...úúúú ég er svo spennt :)

Svo er ég búin að fá vinnu í Skjern sem sjúkraþjálfari á klinikstöð, reyndar bara sem afleysingardama en það er allavega betra en ekki neitt, ég vinn 2 daga í viku svo ég get haldið hinum vinnunum mínum í líkamsræktinni og með handboltanum líka svo ég er bara hæst ánægð með þetta. Nema að það er um 45 keyrsla til Skjern en þá verður maður bara duglegur að updeita i-potinn :)

Jæja ekki fleira í bili

kv Tinna fysioterapeut


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 11:35:55 / tinnaj

Ég er að stinga ykkur af strákar !!!

Já það hefur verið aldeilis kátt í höllinni síðustu daga. Kristján Svan Kristjánsson hefur verið hjá okkur í nærri því viku og þeir sem þekkja kappann vita að ekki fylgir honum nein lognmolla :) Hann kom til Lemvig á laugardaginn síðasta og þá skelltum við okkur öll á leik í Holstebro þar sem Skjern skelltu heimamönum. Þar hitti ég nokkrar af kærustum Skjernleikmanna sem ég hef kynnst í gegnum þessi 2 ár sem Villi var í Skjern....ég var ekkert smá ánægð að hitta þær og nú í fyrsta skipti á æfinni tók ég ekki 12´krika - svitakast þegar ég tala dönsku...held meira að segja að ég hafi náð að skella einum til tveim djókerum á liðið :) Svo fórum við íslenska gengið til Skjern og fengum okkur að borða á pakkhúsinu og svo í smá grín og glens heim til Vignis. Þar sem Villi greyið var að fara að keppa daginn eftir gat hann ekki verið með okkur allan tíman og keyrði heim til Lemvig um miðnætti en skildi bjórþyrstukonuna sína eftir að tjútta með hinum 2 vitleysingjunum. Þetta varð bara hið skemmtilegasta kvöld, spilað á gítar og sungið, lítið um dans en hringt opinská símtöl til Íslands....bara gaman :)

  

Daginn eftir skutluðumst við hin óskynsömu til Lemvig þar sem ég átti auðvitað að vera sjúkrþjálfari á leiknum. Ég mætti, eldhress með besta vin minn ,,Clear eyes" á leikinn og strákarnir ætluðu að leggja sig örlítið fyrir leikinn og mæta svo og sjá Villann í action í fyrsta leiknum með Lemvig. Leikurinn leið og Villi stóð sig mjög vel, var valinn maður leiksins :) en ekkert bólaði á hinum víkingunum. Svo þegar við komum heim blasti við okkur fögur sjón...tveir fullorðnir karlmenn kúrandi saman í skeið í gestaherberginu....sauðirnir höfðu sofið yfir sig og misst af leiknum....uss

Næsta dag skellti ég mér í biltúr með Kristjáni til Fredericia þar sem hann þurfti að sækja dótið sitt og ganga frá ýmsum málum og kíktum við þá í heimsókn til Fannars og Árnýjar og littla snúlla...ji hvað er nú mikið yndi, þvílíkt mikil rúsina og alveg eins og mamma sína...enþá allavega :) Þessi bíltúr var nú heldur hættulegur...ég skil ekki hvað er alltaf verið að bölva konum í umferðinni....Kristján helvíti öruggur á stýrinu....skellti sér bara á öfugan vegarhelming á gatnarmótum og keyrði smá spöl á móti umferð með mig gargandi í farþegasætinu. Já og svo misstum við aftur nokkur hjartslög úr þegar við keyrðum næstum því á Hímen-Bamba....shitt...þetta var sko stærsta dádýr sem ég hef séð, stóð þarna á veginum eins og einhver hestur...úff þar munaði sko mjóu að illa hefði farið.

Næstu dagar fóru svo í það að baka fyrir drengina sem spiluðu þó nokkuð mikið playstation..og jú og vinna þá báða í Scrabble...uss þeir áttu ekki breik en báðu alltaf um rematch en kellan átti leikinn :) Svo fórum við Kristján einn daginn til Holstebro að versla, þar sáum við þennan risa stóra Stóra dan...náði mér næstum að brjóstum...það mætti halda að þessir Danir séu eitthvað að sprauta í dýrin sín.  

ps. ástæðan fyrir því að ég og Kristján vorum alltaf að hanga saman bara 2 er sú að Villi var svoldið upptekinn í skólanum...ekki það að við höfum verið að skilja hann útundan :) 

En nú erum við aftur orðin 2 í koti, eigum leik í Sudhavnsörerne...sem er rétt við Svíþjóð..um helgina svo það er skemmtileg rútuferð framundan. Svo kemur mútta næsta fimmtudag...ú hlakka svo til :)

Vil minna á að ég hef sett inn nokkrar myndir og eru þær hér neðst á síðunni :)

kv Tinna


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 20:54:32 / tinnaj

Aðskilnaður...

Ji ég hreinlega veit ekki hvernig ég á að haga mér núna. Ég hef ekki hitt Villa núna í að verða 6 klukkustundir..ó mæ god...ætli hann hafi breyst...ætli hann sakni mín...ji dúdda....Nei rúlig nú....Þetta er sem sagt í fyrsta skipti síðan við fluttum út að ég og Villi erum ekki saman....ALLTAF...

...hehe það hlómar virkilega eins og ég sé orðin mjög leið á kauða en svo er alls ekki...bara svona létt sjokk að vera saman 24/7 eftir 2ja ára fjarbúð. En í kvöld er ég einsömul í kotinu okkar, er búin að kveikja á kertum og nýt þess að sitja hér ein í notalegheitum með vínber í skál :)

Ástæðan fyrir þessum aðskilnaði er ekki sú að ég hef hent stóra manninum á dyr, heldur ákvað hann að sinna hinni elskunni sinni í nágrannabæ okkar...jebbb..hann er farinn að kúra hjá Vigni. Þeir í Skjern voru sem sagt að keppa í dag við Kolding, skítlágu fyrir þeim með 9 mörkum greyin og forráðamenn í Skjern voru svo huggulegir að bjóða Villa á leikinn og í mat fyrir leikinn og allt. Það hefði nú verið gaman að skella sér með þar sem þessi viðburður er tvímælalaust hápunktur á því félagslífi sem býðst hér í sveitinni en ég þurfti að vinna :( En jæja..það er ekki eins og það sé verið að þræla mér út hérna svo þetta er bara ágætt að fá smá alone-time :)

En já...Danir...mér finnst þeir vera algjör yndi og kann vel við mig í þeirra landi, en það er svo merkilegt að þeir eru mjög passasamir upp á að ofgera sér ekki. Nú hef ég verið að semja um vaktarvinnu í líkamsræktarstöðinni..og ég segist alveg vera til í að taka heilan sunnudag svona af og til sem er frá 9-15. Nei nei nei nei...úff 6 tímar það er allt of mikð þú verður alveg dauðþreytt eftir það, þú þarft frí, 3 tímar eru alveg nóg. Svo stelpurnar í handboltanum...kannski fæ ég oftar að heyra ,,Jeg er bara saa træt" ,,Jeg er fuldstændig færdig" því ég spila með 2.liði og þá fær maður kannski smá breik...En kommon...annað hvort eru að æfa eða ekki, 3x í viku er ekki rass og mættu bara og æfðu...dísess...

...nei nei...ég veit að við Íslendingar mættum oft taka okkur þetta Dana-attitjút til fyrirmyndar en ekki of mikið væl, þá missum við víkngastimpilinn :)

æja farin að hygge með mér sjálfri...hér kemur mynd af okkur Villa fyrir þá sem eru búin að gleyma hvernig við lítum út :)

j


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 11:06:53 / tinnaj

Strákar strákar strákar

Halló halló, síðasta helgi var aldeilis skemmtileg hér í útlandinu. Lemvig lagði af stað í æfingaferð á föstudeginum þar sem ákveðið var að keyra landið þvert og endilangt og skoða alla yrstu staði landsins, Austur, Vestur, Suður og Norður...og jú...keppa 3 leiki í leiðinni. Þetta var ótrúleg ferð, hálf-atvinnumannalið að ferðast í bíl og það var bara splæst í pínulitla rútu, eða minivan nánast. Sætin voru svo lítil að stærstu mennirnir í liðinu gátu engan vegin setið beinir og ekki var mikið pláss fyrir töskurnar svo þær bættu ekki plássleysið. Ég fór með í ferðina sem sjúkraþjálfari auðvitað og var eini kvennmaðurinn um borð. Við Villi ákváðum að setja kærustuparahlutverk okkar á hilluna í þessari ferð þar sem leikmenn eiga svona helst ekki að vera að kúra með sjúkraþjálfurunum og Villi á ekkert að hagnast á menntun sinnar konu. Ætli strákarnir í liðinu haldi ekki að ég og Villi séum þvílíkt ,,Ískalt" par þar sem ég held að ég hafi snert Villa minnst í þessari ferð af öllum leikmönnunum...en svona verður þetta að vera. Við gistum á svona Vandrehjem sem var sosum allt í lagi, en ég gisti sem sagt í herbergi með 3 gaurum, bara einum sem ég er vön að gista með.

Handboltalega séð var þetta ok ferð, 3 leikir spilaðir á móti liðum sem eru í 1.deildinni og þar af unnust 2. Ég tel það nú bara ágætt miða við alla setuna í rútubílnum...vá hvað þetta var eitthvað illa skipulögð ferð, við sátum ekkert smá lengi í rútu og ferjum til að spila leikina...hefði kannski verið betra að skipuleggja hitting á miðri leið með nokkrum liðum og geta þá æft í stað þess að sitja, þá hefði allavega verið minna að gera hjá mér í að meðhöndla bakmeiðsli...

Annars er ekkert mikið fleira að frétta, er enþá að leita mér að vinnu hérna í Danmörkunni sem er satt að segja ekki draumaland fyrir atvinnulausa sjúkraþjálfara, en er búin að semja umsókn sem ég ætla að skutla á alla staði í nærliggjandi bæjum og vona það besta. Annars er ég að fara að undirbúa bakleikfimi sem ég ætla að hafa í líkamsræktarstöðinni hérna, er að fara að finna lög, spor og æfingar..og réttu dösnku orðin :) Svo ætla ég líka að bjóða upp á einkaþjálfun svo vonandi fara hjólin að fara að rúlla.

Svo í kvöld er leikur í bikarnum hjá Lemvig, þeir mæta HC NordJylland og það verður pottþétt hörkuleikur :) 

Bráðlega fara að koma inn myndir...lofa :)

kv Tinna


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.08.2007 16:42:14 / tinnaj

101 Lemvig

Jæja þá er komið að því að skrá aðra færslu héðan úr útlandinu og er sú færsla heldur betur djúsí...jahá....

....neibb....ég held að Lemvig sé ekki nógu stór bær til að það gerist eitthvað djúsí hér...samt ef það myndi nú eitthvað gerast þá væri ég allavega fyrst með fréttirnar....íbúðin okkar er sem sagt staðsett beint niðrí bæ, við búum á 2.hæð í gömlu húsi og beint fyrir neðan okkur á horninu er eldgömul garnabúð með ljótustu prjónapeysum veraldar í glugganum. Villi er nú samt búin að vingast við gömlu konuna sem á búðina þegar hann fór með buxurnar sínar og lét setja nýja tölu á þær....jú ég hefði svosum líklega getað klórað mig fram úr því...en Villi kaus þá gömlu :)

...en að slúðrinu....já göngugatan (heilir 300 m) byrjar sem sagt þar sem íbúðin okkar er, og svo hinum megin við götuna er aðalveitingastaðurinn í bænum og er hann opinn frekar lengi svona miðað við danska matsölustaði, þar er alltaf troðfullt af fólki þannig ég er alveg með það á hreinu ef einhver bæjarbúi laumast í nachos og bjór á miðvikudegi...hehe. Svo er það Pizza-staðurinn ,,okkar" ....já ég segi okkar...þar sem inngangurinn að pizza-staðnum er beint við hliðiná okkar inngangi og sá pizza-staður er opinn til 5 á morgnanna....svo að á hverjum sunnudegi þegar ég fer út í morgunskokkið mitt (je right)...labba ég ofan í pizzuafganga, bréfadiska, kebabsamlokur og stöku sinnum er skilin eftir eitt stykki pepparóní-æla á tröppunum. Þetta er víst bara það sem fylgir því að búa svona down town...en Lemvig-hreinsunar-kallarnir mega nú eiga það að þeir eru duglegir að vakna um helgar því bærinn er yfirleitt orðinn spikk and span um hádegi og hefur fengið aftur sitt krúsídúllu-lúkk :)

Annars er allt gott að frétta af okkur, ég er að vinna á þessari líkamsræktarstöð og hef fengið nokkra til mín með ýmis vandamál og ég hef útbúið handa þeim hentugt æfingaprógram. Svo að starfið líkist æ meira starfi sjúkraþjálfara....ég er mjög ánægð að vinna þarna, maður kynnist fólkinu í bænum og nær að æfa sig í dönskunni alveg á fullu :)

Villi og strákarnir í Lemvig eru búnir að vera að spila fullt af æfingaleikjum undanfarið en deildin byrjar 16.september. Þeir gerðu sér svo lítið fyrir og unnu Viborg í bikarnum en þeir hafa verið eitt af betri liðum í efstu deild. Þetta var geggjaður leikur, spilaður í Viborg en litlu drengirnir frá Lemvig spiluðu agaðast handbolta sem ég hef séð og unnu með einu marki....úff þetta var svo spennandi....ég var alveg sveitt á bekknum....bæði af stressi og svo voru allir eitthvað meiddir....en þetta var góð byrjun á tímabilinu :)

En jæja...er farin að borða skridt-frikadeller sem er aðarétturinn hans Villa þegar hann eldar, kjötbollur í brúnni sósu og kartöflumús úr pakka.....ljúffengt :)

kv Tinna


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11